9. maí 2025
Íslandsbanki og VÍS í samstarf
Aukin fríðindi fyrir sameiginlega viðskiptavini Íslandsbanka og VÍS.

Í maí hófst samstarf Íslandsbanka og VÍS þar sem sameiginlegir viðskiptavinir beggja félaga munu njóta aukinna fríðinda og þjónustu.
Með samstarfinu fá viðskiptavinir enn betri yfirsýn yfir fjármálin þar sem tryggingar VÍS munu birtast í appi Íslandsbanka og þar verður einnig hægt að óska eftir tilboði í tryggingar.
Frá og með 6. maí verða ráðgjafar VÍS staðsettir í þremur útibúum Íslandsbanka:
- Norðurturni
- Suðurlandsbraut
- Dalbraut 1 á Akranesi