3. júní 2025
Lægri vextir, hærra lánshlutfall og lengri lánstími
Má bjóða þér lægstu vexti á bílalánum?

Frá og með 3. júní lækkar Ergo vexti á öllum bílalánum og eru vextir á lánum undir 50% lánshlutfalli nú þeir lægstu á markaðnum.
Við höfum líka breytt lánareglum og vaxtaflokkum og hækkað lánshlutfall.
Þetta þýðir að hámarks lánshlutfall bílalána fer úr 80% í 85% auk þess sem samanlagður aldur bíls og lánstíma lengist úr 11 árum í 13 ár.
Samhliða þessu voru gerðar breytingar á vaxtakjörum bílalána og skiptast þau nú í fjóra flokka og taka mið af upphaflegu lánshlutfalli.
Flokkarnir eru nú þessir:
- ≤50,99%
- 51% - 69,99%
- 70% - 80,99%
- 81% - 85%