Sleppa aðalvalmyd
home
Leit
Lánið mitt
13. mars 2025

Bílaþvottur í boði Ergo!

Með hækkandi sól er gaman að aka um á hreinum bíl. Ergo fagnar 40 ára afmæli á árinu og ætlar af því tilefni að bjóða öllum einstaklingum, sem eru með bílalán hjá Ergo, frían bílaþvott hjá Löðri þvottastöð.

Gjöfin er aðgengileg í gegnum Fríðu, fríðindakerfi Íslandsbanka.

Hvernig notar þú gjöfina?

  • Virkjaðu tilboðið í Íslandsbanka appinu
  • Greiddu með Íslandsbanka kortinu
  • Fríða endurgreiðir þér svo 18. næsta mánaðar
  • Gildir til 26. mars 2025

 Ekki með kort frá Íslandsbanka?

Til þess að geta nýtt þetta og fleiri frábær tilboð í Fríðu getur þú sótt um debet- eða kreditkort hjá Íslandsbanka á nokkrum mínútum.

Löður er á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Reykjanesbæ og Vestmannaeyjum. Allar nánari upplýsingar um þjónustu og staðsetningar má finna á vefsíðu þeirra. Endurgreiðslan er að hámarki 5.500 kr. og gildir ekki af áskrift.

;