Ferðavagnar
Við lánum líka fyrir ferðavögnum og húsbílum og gilda sömu lánareglur og fyrir bíla hvað varðar hlutfall og lánstíma. Hvernig ætlar þú að ferðast í sumar?

Reiknaðu dæmið
Með jöfnum greiðslum greiðir lántaki um það bil sömu upphæð á hverjum gjalddaga.
Ferlið er einfalt

Um leið og þú hefur fundið drauma ferðavagninn biður þú söluaðila um að senda okkur umsókn fyrir þína hönd.
Allt að 80% fjármögnun
Við fjármögnum allt að 80% af kaupverði vagnsins með óverðtryggðu láni til allt að 8 ára.
Þú mátt skipta um skoðun
Þú getur auðveldlega flutt lánið með þér á milli ferðavagna og jafnvel bætt við það þegar þú skiptir um vagn.
Flest milli himins og jarðar
Við lánum ekki bara fyrir bílum heldur líka ferðavögnum, mótorhjólum og öðrum skemmtilegum leiktækjum.
Ekkert uppgreiðslugjald
Þú getur hvenær sem er greitt inn á lánið eða greitt það upp án aukakostnaðar.
Þú ræður hvar þú tryggir
Ferðavagnar með láni þurfa að vera ábyrgðar- og kaskótryggðir, en þú ræður hvar þú tryggir.
Rafrænt greiðslumat
Ef lánið fer yfir 2,9M fyrir einstakling eða 5,9M fyrir hjón/sambúðarfólk, þá þarf að fara í greiðslumat.

Get ég greitt inn á lánið mitt?
Þú getur alltaf greitt inn á lánið þitt til að lækka mánaðarlegu greiðslurnar – það er ekkert mál og kostar ekkert aukalega.
Lesa nánar
Er ferðavagninn lánshæfur?
Til þess að geta fengið lán fyrir ferðavagninum sem þú hefur áhuga á eru nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga, til dæmis aldur ferðavagnsins, verðmæti hans og hversu mikið þú vilt fá lánað. Við hjálpum þér að eignast draumaferðavaginn þinn.
Lesa nánarSpurt og svarað
Sjá meira
Við aðstoðum með ánægju
Við leggjum áherslu á að veita þér hraða og góða þjónustu þar sem þarfir þínar eru í fyrsta sæti. Við svörum fyrirspurnum í móttöku og í síma á opnunartíma auk þess að svara tölvupóstum hratt og vel.