Sleppa aðalvalmyd
home
Leit
Lánið mitt

Bílar með reynslu

Við skiljum ástæður fyrir kaupum á alls konar bílum, gömlum og nýjum. Var einhver á heimilinu að fá bílpróf eða þarftu aukabíl? Við aðstoðum þig með ánægju sama hver ástæðan fyrir bílakaupunum er og sama hvað bíllinn er gamall. Því við vitum að aldur er bara tala.

Fleiri möguleikar við bílakaup

  • 100% lán, vextir eru nú 12,50%.

  • Ekki er farið fram á kaskótryggingu.

  • Lán til allt að 60 mánaða á fyrsta veðrétti.

  • Ferlið er einfalt og lánið er undirritað rafrænt.

  • Hámarkslánsfjárhæð er 3.000.000 kr.

  • Bílar og tæki sem eru 13 ára og eldri, óháð akstri.

Ferlið er einfalt

Um leið og þú hefur fundið bílinn biður þú bílasala um að senda okkur umsókn fyrir þína hönd.

Gott að vita

100% lán

Við fjármögnum allt að 100% af kaupverði með óverðtryggðu láni til allt að 5 ára.

Þú mátt skipta um skoðun

Þú getur auðveldlega flutt lánið með þér á milli bíla og jafnvel bætt við það þegar þú skiptir um bíl.

Fyrir hverja eru bílar með reynslu?

Bílar með reynslu eru fyrir einstaklinga sem eru 20 ára eða eldri og í lánshæfisflokki A1-B2.

Ekkert uppgreiðslugjald

Þú getur hvenær sem er greitt inn á lánið eða greitt það upp án aukakostnaðar.

Lesa meira

Þú tryggir þar sem þú vilt

Bílar með reynslu þurfa að vera ábyrgðartryggðir en þú ræður hvort þú kaskótryggir.

100% rafrænt

Umsóknarferlið er rafrænt og þú undirritar öll skjöl í símanum þínum.

Aðalatriðin

  • Lágmarkskaupverð er 500.000 kr.

  • Á við um bíla sem eru 13 ára og eldri.

  • Lágmarkslán er 500.000 kr.

  • Þú velur jafnar greiðslur eða jafnar afborganir.

  • Hámarkslán er 3.000.000 kr.

  • Þú ræður hvort þú kaskótryggir.

  • Hámarkslánstími er 60 mánuðir (5 ár).

  • Þú þarft að vera í lánshæfisflokki A1-B2.

  • Lánshlutfall getur verið allt að 100% + lántöku- og umsýslugjald.

Algengar fyrirspurnir

Innborgun á lán

Þú getur alltaf greitt inn á lánið þitt til að lækka mánaðarlegu greiðslurnar – það er ekkert mál og kostar ekkert aukalega.

Lesa nánar

Netbankinn

Í netbanka Íslandsbanka getur þú skoðað upplýsingar um lánið þitt, séð stöðu þess, greitt það upp eða greitt inn á það.

Opna netbanka

Appið

Í Íslandsbankaappinu getur þú skoðað upplýsingar um lánið þitt, séð stöðu þess, greitt inn á það eða greitt það upp. Nánar um appið á vef Íslandsbanka.

Skoða nánar

Bílar með reynslu - Spurt og svarað

Spurt og svarað fyrir einstaklinga - Sjá allt
Þjónusta

Við aðstoðum með ánægju

Við leggjum áherslu á að veita þér hraða og góða þjónustu þar sem þarfir þínar eru í fyrsta sæti. Við svörum fyrirspurnum í móttöku og í síma á opnunartíma auk þess að svara tölvupóstum hratt og vel.

Nánar