Útflutningur
Ert þú að fara til útlanda?
Reglur um útflutning bíla frá Íslandi
Meginreglan er að bílar sem eru fjármagnaðir af Ergo skulu notaðir á Íslandi en þú getur sótt um leyfi til að fara með bílinn til útlanda. Verðmæti bíls og tegund getur komið til athugunar við mat á umsókn.
Við brottför þarft þú að framvísa leyfi frá Ergo til að fara með bílinn með þér.
Samþykki er háð því að:
- Leigu-/lánasamningur sé í skilum
- Bíllinn sé ábyrgðar- og kaskótryggður
- Lán-/leigutaki sé með græna kortið og þjófnaðartryggingu, frá tryggingafélaginu sínu, meðan á dvöl erlendis stendur
- Lán-/leigutaki undirritar beiðni um útflutninginn þar sem fram kemur komu- og brottfarartíma
- Ef dvalartími liggur ekki fyrir þá getur verið farið fram á auka tryggingu
Vinsamlega sendu fyrirspurn á netfangið ergo@ergo.is og við komum málinu í réttan farveg fyrir þig.