Innborgun á höfuðstól
Það er einfalt að greiða inn á höfuðstólinn
Þú getur hvenær sem er greitt inn á höfuðstólinn á bílalánum og bílasamningum og lækkað þannig mánaðarlegar greiðslur. Ekkert umframgreiðslugjald er tekið fyrir innborganir. Þú getur klárað málið með einföldum hætti í gegnum netbanka Íslandsbanka. Ferlið er eftirfarandi:
- Þú byrjar á því að skrá þig inn í netbanka Íslandsbanka
- Þú ferð í yfirlit lána undir „Lán“ og velur það lán sem á að greiða inná með því að ýta á lánanúmerið undir „Númer“
- Þá opnast gluggi með ítarlegum upplýsingum um lánið. Smellir á hnapp með þremur línum efst í þeirri valmynd (hægra megin við reitinn „Vanskil“)
- Þá opnast fellilisti og þar velur þú „Innborgun á lán“
- Þú hakar við "Innágreiðsla á lán" og slærð inn þá upphæð sem þú vilt greiða inná lánið
- Undir „Úttektarreikningur“ velur þú þann reikning sem þú vilt taka útaf fyrir innborguninni
- Smellir á „Áfram“
- Slærð inn öryggisnúmer og smellir á "Greiða"
Nánari upplýsingar
- Lágmarksfjárhæð innborgunar er kr. 1.000
- Athugið að eftirstöðvar lána Ergo í netbanka eru dagsgamlar og að sama skapi uppfærast þær daginn eftir að innborgun hefur verið framkvæmd.
- Ef innborgun er vegna lána hjá einstaklingi:
- Ef það er útgefinn greiðsluseðill (krafa) sem er ekki kominn á gjalddaga og gerð er innborgun á lánið þá fer öll upphæðin til lækkunar á höfuðstól lánsins.
- Ef það er útgefinn greiðsluseðill (krafa) sem er kominn á gjalddaga og gerð er innborgun á lánið þá er ráðstöfun innborgunarinnar með þeim hætti að innborgunin fer fyrst til greiðslu á kostnaði og greiðsluseðli. Ef það er eitthvað umfram þá fer það til lækkunar á höfuðstól lánsins.
- Ef innborgun er vegna lána hjá lögaðila:
- Ef það er útgefinn greiðsluseðill (krafa) sem er ekki kominn á gjalddaga og gerð er innborgun á lánið þá er ráðstöfun innborgunarinnar með þeim hætti að áfallnir vextir eru fyrst greiddir og það sem er umfram fer til lækkunar á höfuðstól lánsins.
- Ef það er útgefinn greiðsluseðill (krafa) sem er kominn á gjalddaga og gerð er innborgun á lánið þá er ráðstöfun innborgunarinnar með þeim hætti að innborgunin fer fyrst til greiðslu á greiðsluseðlinum og ef það er eitthvað umfram þá fer það til greiðslu á áföllnum vöxtum og svo til lækkunar á höfuðstól lánsins.
Ef þú ert ekki með netbanka Íslandsbanka þá getur þú millifært til okkar, sett bílnúmerið í skýringu og sent okkur greiðslukvittun á netfangið greidslur@ergo.is.
Reikningsupplýsingarnar eru: 0599-22-1, kt. 490503-3230.
Með því að greiða inn á höfuðstól lækkar þú mánaðarlega greiðslubyrði en styttir ekki lánstímann.