Spurt og svarað
Fjármögnun
Hvernig tek ég bílalán eða bílasamning, er það flókið ferli?
Er eitthvað lágmarksverðmæti til að hægt sé að fá fjármögnun?
Hver er munurinn á bílaláni og bílasamningi?
Í báðum tilfellum berð þú ábyrgð á að vátryggja ökutækið, standa skil á sköttum og gjöldum og sjá um viðhald og annan rekstrarkostnað.
Jafnar afborganir eða jafnar greiðslur og hver er munurinn?
Þegar um jafnar greiðslur er að ræða þá er afborgunarhluti greiðslunnar lægri til að byrja með og vaxtahlutinn hærri, það snýst svo við eftir því sem líður á láns-/samningstímann. Mánaðarleg greiðsla er svipuð út láns-/samningstímann, tekur þó breytingum í takti við vaxtabreytingar.
Þegar um jafnar afborganir er að ræða þá er afborgunarhlutinn alltaf sá sami í hverjum mánuði, en vaxtahluti hvers mánaðar leggst ofan á. Mánaðarleg greiðsla er því hærri í byrjun lánstíma þar sem höfuðstóllinn er hærri þá og vaxtahlutinn því einnig hærri þá.
Þarf ég að fara í greiðslumat?
Samkvæmt lögum um Neytendalán ber okkur að gera greiðslumat ef upphæð fjármögnunar fer yfir 2.800.000 króna fyrir einstakling eða 5.650.000 króna fyrir hjón eða sambúðarfólk.
Þarf ég að vera með ábyrgðarmann?
Viltu færa lánið af gamla bílnum yfir á nýjan?
Þetta er einfalt í framkvæmd en þú tekur einfaldlega lánið eða samninginn þinn og flytur yfir á nýja tækið. Ef þú ert með bílalán er gerður veðflutningur en ef þú ert með bílasamning eru gerð tækjaskipti. Kostnaður við þetta er samkvæmt gjaldskrá Ergo hverju sinni.
Þú getur sótt um með því að biðja bílasala um að sækja um og klára málið fyrir þig.
Ert þú nú þegar með lán eða samning hjá Ergo og vilt skipta yfir í dýrara tæki en vantar viðbótarfjármögnun?
Hægt er að skipta um tæki og fá á sama tíma viðbótarlán. Þú einfaldlega sameinar núverandi lán eða samning og það sem uppá vantar til að klára málið með nýju sameiningarláni. Því fylgir einnig minni tilkostnaður heldur en ef tekið er nýr bílasamningur eða nýtt bílalán fyrir allri fjárhæðinni.
Þú getur sótt um sameiningarlán eða -samning með því að biðja bílasala um að sækja um og klára málið fyrir þig.
Er draumabíllinn fundinn og er nú þegar í fjármögnun hjá Ergo?
Ef þú ert búin að finna draumabílinn eða tækið, sem er með áhvílandi lán eða samning frá Ergo, getur þú sótt um að yfirtaka lánið eða samninginn.
Þegar yfirtaka er framkvæmd er útbúið nýtt lán eða samningur á þínu nafni fyrir núverandi eftirstöðvum sem þú tekur yfir og greiðir af. Það er þó ávallt mat ráðgjafa hjá Ergo hverju sinni hvort yfirtaka sé samþykkt og er kostnaður samkvæmt gjaldskrá Ergo hverju sinni.
Þú getur sótt um yfirtöku með því að biðja bílasala um að sækja um og klára málið fyrir þig.
Aldur, lánstími, lánshlutfall og vextir
Hvað má bíllinn vera gamall?
Hámarksaldur bíls er 10 ár. Aldur bíls + lánstími má ekki vera lengri en 11 ár.
Hversu langan lánstíma er boðið upp á?
Hvað get ég fengið hátt lánshlutfall?
Hvað þarf ég að vera gömul/gamall til að vera lánshæf/ur hjá Ergo?
Eru vextir fastir eða breytilegir?
Eigandi bílsins
Hvað þýðir það að Ergo sé skráður eigandi bílsins en ekki ég?
Tryggingar og tjón
Hvað með tryggingar, þarf alltaf að kaskótryggja?
Hvað geri ég ef ég lendi í tjóni?
Greiðslur á samningstíma
Get ég greitt inn á samninginn eða lánið á meðan það er enn í gangi?
Hvernig greiði ég inn á samninginn eða lánið?
Er heimilt að greiða upp höfuðstól fyrir lok láns/samningstíma?
Staða á lánum og greiðsluseðlar
Hvernig get ég fengið stöðu til að greiða upp lán/samning?
Hvar get ég séð áramótastöðuna hjá Ergo fyrir skattaskýrsluna?
Áramótastöður bílalána og bílasamninga einstaklinga eru birtar á skattskýrslu lántaka.
Get ég fengið senda greiðsluseðla?
Ergo sendir ekki greiðsluseðla til viðskiptavina nema sérstaklega sé beðið um það en það er gert til þess að lækka greiðslugjald. Þú getur alltaf nálgast greiðsluseðlana þína í netbankanum þínum undir netyfirlit/rafræn skjöl. Viljir þú fá seðla senda heim getur þú haft samband við okkur. Greiðslugjald er samkvæmt gjaldskrá Ergo.
Get ég lækkað greiðslugjaldið?
Með því að senda ekki greiðsluseðla í pósti lækkar greiðslugjaldið en hægt er að lækka það enn frekar með því að skrá lánið eða samninginn í beingreiðslur. Það getur þú gert með því að hafa samband við þinn þjónustufulltrúa en einnig getur þú gert það í þínum netbanka. Til þess að ganga frá skráningu þarftu að hafa við höndina viðskiptanúmerið þitt hjá Ergo en það kemur fram á greiðsluseðlum og er xxxxxx-xxx. Þú getur skoðað hvernig greiðslugjaldið breytist í gjaldskránni okkar.
Taka bílinn með til útlanda
Get ég farið með ökutæki með áhvílandi láni eða samningi til útlanda?
Meginreglan er sú að bílar sem eru fjármagnaðir af Ergo skulu notaðir á Íslandi og er allur útflutningur háður formlegu samþykki Ergo að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Við brottför þarf að framvísa leyfi frá Ergo til að fara erlendis með bílinn.
Eftirtalin skilyrði gilda um ferðalög innan orlofstíma (15. maí til og með 30. ágúst) en aðrar reglur gilda um útflutning utan orlofstíma.
Skilyrði fyrir samþykki til útflutnings bíla er:
- Leigu-/lánasamningur skal vera í skilum.
- 12 mánuðir séu liðnir frá gerð samnings eða yfirtöku, eða eigendaskiptum á skráðu félagi sem er lántaki að viðkomandi bifreið.
- Bíllinn skal vera ábyrgðar- og kaskótryggður, með græna kortið og þjófnaðartryggður meðan á dvöl erlendis stendur.
- Leigu-/lántaki undirriti beiðni um útflutning þar sem fram kemur komu- og brottfarartími ásamt afritum af farmbréfi skipafélags.
- Staðfesting frá skipafélagi um að flutningskostnaður til og frá Íslandi sé greiddur.
- Leigu-/lántaki gefi upp númer vegabréfs auk símanúmers, netfangi og heimilisfangi á ferðatíma.
- Verðmæti bíls og tegund getur komið til athugunar við mat á umsókn.
- Kostnaður við leyfi til útflutnings er kr. 15.000.
Fjármögnun
Hvert er hámarks fjármögnunarhlutfall í kaupleigu?
Ergo fjármagnar allt að 70% af kaupverði fyrir utan vsk.
Er hægt að fjármagna önnur skráningarskyld tæki en bifreiðar og atvinnutæki?
Já, enda fjármögnum við flest milli himins og jarðar. Til þess að tæki uppfylli kröfur um fjármögnun hjá okkur þurfa þau, meðal annars, að vera með raðnúmer, lausfest, flytjanleg og með virkan eftirmarkað.
Er hægt að fá fjármögnun á bifreiðar og/eða tæki sem hafa lent í tjóni?
Nei, tæki og bifreiðar sem lent hafa í tjóni eru ekki lánshæf.
Get ég fengið fjármögnun fyrir nýstofnað fyrirtæki?
Já, við erum alltaf tilbúin að skoða málið. Hafðu samband við ráðgjafa Ergo sem aðstoðar með ánægju og veitir þér allar frekari upplýsingar um næstu skref.
Hvað gerist þegar fjármögnuð tæki eru seld?
Sé um kaupleigusamning að ræða þarf að gera samninginn upp, leigutaki fær í hendur afsal og staðfestingu á eigendaskiptum sem þarf að skila til Samgöngustofu eða Vinnueftirlitsins eftir tegund tækis. Sé um veðlán að ræða þarf að greiða það upp og Ergo aflýsir veði í kjölfarið.
Hversu langan tíma tekur að afgreiða umsókn um fjármögnun atvinnutækja?
Almennur afgreiðslutími umsóknar er 1-3 dagar eftir að öllum nauðsynlegum gögnum hefur verið skilað inn. Því fyrr sem umsækjandi skilar inn öllum nauðsynlegum gögnum því hraðar gengur ferlið fyrir sig.
Samningstími
Hvað er hámarkssamningstími á leigubíla?
Samningstími bifreiðar sem ætluð eru til leigubílaakstur er almennt skemmri en samningstími hins almenna fjölskyldubíls. Ástæðan er sú að leigubílnum er ekið mun meira en fjölskyldubílnum og er afskriftarferli þeirra hraðara.
Virðisaukaskattur
Hvernig er meðhöndlun virðisaukaskatts ef leigutaki er í vsk. skyldri starfsemi?
Seljandi gefur út reikning á Ergo. Ergo gefur svo út vsk. reikning með kaupleigusamningi stílaðan á leigutaka, sem leigutaki getur fært til innskatts í sínu bókhaldi.
Hvernig er meðhöndlun virðisaukaskatts á bílum á rauðum númerum?
Seljandi gefur út reikning á Ergo sem síðan gefur út reikning á leigutaka.
Gögn
Hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn um fjármögnun fyrir fyrirtæki?
Öllum umsóknum þarf að fylgja nýjasti ársreikningur eða skattaskýrsla auk viðbótargagna eftir því sem við á. Við mælum með því að þú hafir samband við fyrirtækjaráðgjafa okkar sem geta gefið þér allar nánari upplýsingar um þau gögn sem þyrftu að fylgja þinni umsókn.