Við aðstoðum þig

Við fjármögnum flest milli himins og jarðar og ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband og við aðstoðum með ánægju.

Pétur Magnússon
Ráðgjafi einstaklinga

Bifreiðar

Ergo vill vera hreyfiafl til góðra verka og hafa að leiðarljósi stefnu Íslandsbanka sem byggir m.a. á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir í loftslagsmálum. Það gerum við með því að bjóða Græna fjármögnun á rafmagnsbifreiðum og stuðla þannig að fjölgun umhverfisvænni farartækja. Þegar óskað er eftir fjármögnun á rafmagnsbifreiðum (CO2 útblástur 0 g/km) þá standa viðskiptavinum hagstæðari vaxtakjör til boða, sjá nánari upplýsingar í  gildandi verðskrá vegna bílalána og bílasamninga hverju sinni.  Einnig er veittur afsláttur af stofngjöldum við fjármögnun á rafmagnsbílum, sjá í verðskrá. Lánstími á nýjum rafmagnsbifreiðum getur verið allt að 96 mánuðir og hámarks lánshlutfall er 80%.


Reikna

Rafmagnshjól og hleðslustöðvar

Ergo býður Græna fjármögnun fyrir einstaklinga á nýjum rafmagnshjólum og hleðslustöðvum fyrir bifreiðar sem keypt eru af viðurkenndum söluaðilum. Lágmarkslánsfjárhæð vegna rafmagnshjóla er kr. 150.000 en engin lágmarkslánsfjárhæð er vegna hleðslustöðva. Lánsfjárhæð getur að hámarki verið kr. 600 þúsund vegna rafmagnshjóla og að hámarki kr. 250 þúsund vegna hleðslustöðva. Lánshlutfall getur verið allt að 100% og lánstími er allt að 24 mánuðir. Áætlaðar mánaðarlegar greiðslur og núgildandi vexti má sjá í töflu hér að neðan. Ergo fer ekki fram á veð- eða eignarétt í búnaðinum og ekki er gerð krafa um að búnaðurinn sé vátryggður. Lánaskjöl vegna hjóla og hleðslustöðva berast rafrænt til viðskiptavinar, sem þarf að undirrita þau með rafrænum skilríkjum.


Sækja um

Áætlaðar mánaðarlegar jafnar greiðslur vegna fjármögnunar á rafmagnshjóli eða hleðslustöð miðað við gildandi verðskrá Ergo, vextir nú 13,90%

 

 Lánstími 12 mánuðir   Lánstími 24 mánuðir
Kaupverð búnaðar* Mánaðargreiðsla  Kaupverð búnaðar* Mánaðargreiðsla 
150.000 kr 13.596 kr 150.000 kr    7.267 kr    
200.000 kr 18.127 kr 200.000 kr    9.689 kr
250.000 kr 22.659 kr 250.000 kr 12.111 kr
300.000 kr 27.191 kr 300.000 kr 14.534 kr
350.000 kr 31.723 kr 350.000 kr 16.956 kr
400.000 kr 36.255 kr 400.000 kr 19.378 kr
450.000 kr 40.787 kr 450.000 kr 21.800 kr
500.000 kr 45.319 kr 500.000 kr 24.223 kr
550.000 kr 49.851 kr 550.000 kr 26.645 kr
600.000 kr 54.382 kr 600.000 kr 29.067 kr

 *Stofngjald 1% leggst við kaupverð búnaðar.

Áhugavert

Við fjármögnun
lækningatæki bæði fyrir
dýrog menn.

Fræðsla